Saga Finnsdóttir
Saga er 5 mánaða í dag

Fór í 5 mánaða skoðun og fékk sprautu í lærið. Grét eiginlega ekki neitt, bara eitt lítið tár.

Er að sprengja alla þyngdar og lengdarskala og orðin rúmlega 7,3 kíló. Grunum reyndar hjúkkuna um að slumpa gróflega með málbandið.

Upp á síðkastið er ég að komast upp á lag með að leggja mig fyrir framan sjónvarpið hjá pabba á meðan hann hangir á netinu. Samræming handa er svona að detta inn og ég verð mega pirruð þegar hendurnar gera ekki það sem hausinn segir. Áðan tók ég samt snuðið og skellti því upp í mig. Mamma segir að það sé heppni en pabbi vill meina að ég sé séní.

blog comments powered by Disqus