Í gær borðaði ég graut í fyrsta skipti og i dag var ég bara orðin nokkuð flínk í að halla hausnum aftur til að koma þessu ofan í mig.
Ég æfði mig líka í baði fyrir fyrsta ungbarnasundið. Þá er talið upp á þrjá, blásið í andlitið og svo sullað yfir mig vatni. Það var stuð.